Kembing
Unnu karlar og konur jöfnum höndum að ullarkembingu? Hvað voru börn gömul, er þau voru látin fara að hjálpa til við ullarkembingu? Hófust konur yfirleitt ekki handa við spuna, fyrr en þær áttu álitlegan forða af kembum (nóg í eina snældufylli a.m.k.)? Miðaðist kembing við það m.a. að slíta kömbunum ekki um skör fram? Hvað nefndist ull í hverja einstaka kembingu (kembufylli t.d.)? Hvenær var feitin borin í kembuna? Lýsið kembingunni.
Voru kembur mismunandi að gerð? Voru kemburnar t.d. lagaðar til (rúllaðar saman) með yfirkambinum? Kom fyrir að kembur væru bornar upp við ljós, um leið og þær voru teknar úr kömbunum, til að gæta að, hvort þær væru hnökralausar? Hvar voru kemburnar lagðar (í lár, á sérstakan dúk eða á rúmábreiðuna)? Höfðu konur hlífðarfat eða dúk á hnjánum (kastfat), er þær sátu við kembingu eða spuna? Voru dæmi þess, að ull væri yljuð fyrir kembingu á einhvern hátt, ef hún var köld eða stöm, jafnvel stungið í barminn?

