Klæðavefnaður, veipa.
Tíðkaðist sú tegund vaðmálsvefnaðar, sem í sumum landshlutum var nefnd veipa og annar staðar klæðavefnaður, klæðavend, klæðavenda, venda o.s.frv.? Undir hvaða nafni gekk hún í byggðarlagi yðar? Lýsið henni miðað við mismunandi not. Til hvaða fatnaðar var hún einkum ætluð (sparifata karla, t.d.)? Segið frá uppistöðu (efni, gerð). Segið frá ívafi (efni, gerð). Lýsið litum (sauðarlitir, jurtalitir, útlendir litir).

