Klyfberagjarðir

Lýsið klyfberagjörðum, efni, verklagi við gerð þeirra og útliti. Var mismunandi efnum aldrei blandað saman í einstakar gjarðir (ull, hrosshári hampi o.s.frv.)?
Lýsið gerð hrosshársgjarða. Var taglhár og faxhár notað jöfnum höndum í klyfberagjarðir og þá blandað saman? Var hrosshárið táið milli fingranna eða kembt í kömbum, áður en það var spunnið? Var táið ofan í sérstakt ílát (trog t.d.) eða á pallinn (gólfið) í baðstofunni t.d.? Var mismunandi litum aldrei blandað saman, er hrosshár var táið (kembt)? Hvernig var hrosshárið tekið saman til spuna (snúið í vindil t.d.)?
Var sérstakur hrosshársrokkur til á heimilinu til að nota við hrosshársspuna? Lýsið því. Voru mismunandi hrosshárssnældur til á heimilinu (spunasnælda, tvinningarsnælda t.d.)?
Var sérstök (óvenjuleg) snælda til að nota við hrosshársspuna, er nefndist vingla eða vitlausa snælda? Lýsið henni.
Hvernig var unnið að því að spinna hrosshár á hrosshársrokk? Hvernig var unnið að því að spinna hrosshár á halasnældu (teinsnældu)? Hvar og hvernig var gengið frá hrosshárinu, og hvernig var staðið að spunanum sjálfum? Hvernig var hrosshár spunnið á vinglu (vitlausu snældu)?
Lýsið því, hvernig hrosshár var undið í hnykla og segið frá geymslu þeirra. Lýsið tvinningu. Var hafður réttur eða öfugur snúður á hrosshári í tvinningu? Var sérstakt áhald notað til að jafna snúð á hrosshári í tvinningu (steinn með gati, stórgripsvala t.d.)?
Hvað nefndist það (ádráttur, árenna, árenningur t.d.)?
Hvað nefndist verkið við að vinna gjörð (að bregða gjörð t.d.)?
Hvar og hvernig var rekið í gjörðina og á hve mörgum þáttum var að jafnaði brugðið í klyfberagjörð? Hvernig var gengið frá endanum (auganu), sem byrjað var á að bregða? Lýsið mismunandi aðferðum við að bregða gjarðir (oddagjörð, tennt oddagjörð, þverbrugðin gjörð, valbrugðin gjörð). Hvað nefndust hinar mismunandi gerðir? Var þetta mismunandi eftir heimilum eða eftir því til hvers átti að nota gjörðina (hnakkgjörð, klyfberagjörð)? Lýsið litavali.
Hvernig var gengið frá enda, er lokið var við gjörð?
Segið með sama hætti frá ullargjörðum, vinnu ullar (tægingu, lyppun, spuna) og mismunandi gerðum.
Var hampur unnin úr köðlum (skipsköðlum, strandköðlum) í gjarðir? Voru melrætur unnar í klyfberagjarðir? Lýsið rótasöfnun, undirbúningi spuna, snældu, spunanum sjálfum og öðru, er efnið varðar.
Var notagildi hrosshársgjarða, ullargjarða, hampgjarða og melgjarða metið að jöfnu, þar sem um allar þessar, eða tvær eða fleiri gjarðategundir, var að ræða?
Voru dæmi þess, að spottar úr reiptöglum væru saumaðir saman og notaðir sem klyfberagjarðir?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica