Klyfberi.
Menn eru beðnir að gera grein fyrir þeim fróðleik sem þeim er tiltækur varðandi klyfbera, smíðaefni, smíði og útlit. Hvernig var orðið klyfberi venjulega borið fram? Úr hvaða efni voru klyfberar einkum smíðaðir (trjárótum reknum af hafi, íslensku birki o.s.frv.)? Seldu bændur á rekajörðum eða skógarjörðum efni í klyfberaboga, óunnið, eða hálfunnið?
Voru einstakir bændur eða smiðir, sem smíðuðu klyfbera til sölu eða eftir pöntun? Var nokkurt ákveðið kaupverð á þeim smíðum? Var nokkuð ákveðið við að styðjast í mælingu, er ákveðin var hæð klyfberaboga eða vídd hans milli klyfberafjala (klyfberakinna)? Hver var að jafnaði munur víddar milli klyfberafjala að framan og aftan á fullsmíðuðum klyfbera? Var algengt að smíða klyfberaboga úr tveimur hlutum? Hvernig var þá tengingu þeirra háttað um miðju (geirnegling, járnspangir t.d.)? Hvað nefndust einstakir hlutar klyfbera (klyfberabogi, klyfberafjalir, klyfberakinnar, klyfberaklakkar o.s.frv.)? Voru stundum þrír klakkar á klyfbera, og hvaða tilgangi þjónaði það (ferðaklyfberi t.d.)? Hvað nefndust klakkar á klyfbera, ef þeir voru þrír (hliðarklakkar, miðklakkur t.d.)?
Var annað efni en tré notað í klakka (leggjabein stórgripa, hreindýrshorn t.d.)? Var á sumum klyfberum hnúður með gati ofan á boga í stað miðklakks? Nefndist það nokkuð? Voru klakkar styrktir með einhverjum hætti, ef þeir tóku til að losna (með járnfestingu, gamalli skeifu t.d.)?
Voru klyfberar merktir með einhverjum hætti (smíðaártal, fangamark eiganda, búmark, krossmark t.d.)? Hvar voru þeir merktir (aftan, framan á boga t.d.)? Var sami klyfberi e.t.v. alltaf ætlaður sama hrossi í klyfjaflutningi, sumarlangt eða frá ári til árs, og kom þá fyrir, að hann var merktur með nafni þess?
Hvenær hófst það að búa klyfbera hreyfanlegum járnklökkum, og hvað nefndust klyfberar með þeim búnaði (járnaðir klyfberar, niðurhleypingar, hleypitaksklyfberar t.d.)? Tók nafnbreytingin e.t.v. aðeins til klakkanna (hleypiklakkar t.d.)? Voru mismunandi aðferðir hjá smiðum við að ganga frá loku (hleypiloku) eða smíða loku, sem hélt klökkunum föstum í flutningi? Hverjir urðu fyrstir til að breyta klyfberum sínum í þetta horf? Á hvaða árabili gerðist það? Hvert voru hinar fyrstu fyrirmyndir sóttar? Voru dæmi þess, að klyfberum væri aldrei breytt með þessum hætti?
Kom fyrir, að smíðaðir væru klyfberabogar úr járni?
Var festing fyrir reiða á sumum klyfberum? Hvenær var farið að búa klyfbera böndum til að nota, er hestar voru tengdir saman í lest (band hnýtt um klyfberaboga, bogaband)?

