Koppur, næturgagn
Þótti sjálfsagt að koppur eða næturgagn fylgdi hverju rúmi? Undir hvaða nafni gekk þessi búshlutur (hlandkolla, hlandkoppur, næturgagn, náttpottur, sturli, o.s.frv.)? Muna menn eftir heimagerðum trékoppum? Greinið frá hirðingu þeirra og geymslu að degi. Voru trékoppar marktækir í veðurspám? Vita menn dæmi þess að hlandsteinn úr koppum hafi verið notaður til lækninga og þá hvernig? Hvenær lagðist það almennt niður að nota trékoppa?

