Krossvefnaður.
Kunnið þér að segja frá krossvefnaði eða einstökum gömlum, krossofnum hlutum?
Flosvefnaður.
Kunnið þér af eigin raun eða annarra sögn að greina frá flosvefnaði? Hvaða áhöld voru notuð við flosvefnað (floslár, vefstóll t.d.) Lýsið því. Voru sérstök áhöld notuð við að bregða munsturbandi og undirbandi í skil? Lýsið þeim. Var sérstakt áhald notað til að slá að ívafi (fyrirvafi) í skili? Lýsið því.
Lýsið vefjarefnum. Segið frá orðum, sem lúta að flosi og flosvefnaði og þér kunnið deili á (saumflos, nálaflos, alflos, hálfflos, rósaflos o.s.frv.). Til hvaða nota var flosvefnaður einkum ætlaður (sessur, borðar á föt, húsgagnaáklæði t.d.)? Var flos ofið á fæti? Til hverra nota? Lýsið því. Hafa einstakir hlutir úr íslensku flosi haldist í eigu manna fram á þessa öld (borðar, sessur, eða annað)? Vitið þér um flosofna hluti, sem glatast hafa? Kunnið þér að segja frá floslögðum hlutum (kvenhempum t.d.)? Eru þekktar sagnir af konum, sem kunna flosvefnað, og um verk þeirra?

