Kvöldbænir

Segið frá kvöldbænum og þætti þeirra í lífi fólksins. Hve gömul voru börn að jafnaði er þau gátu farið með bænirnar sínar sjálf? Var e.t.v. við það miðað varðandi þroska og aldur barns? Lýsið hvernig móðir, faðir eða einhver heimilismaður kenndi börnum kvöld- og morgunbænir. Var venjan að byrja á því um líkt leyti og barnið var orðið altalandi? Voru það yfirleitt ákveðnar bænir (bænavers), auk signingar og Faðirvors, sem börnum voru kenndar? Var einnig við það miðað að bænirnar væru lesnar í ákveðinni röð? Höfðu börn sínar eigin aðferðir við að raða bænum sínum niður í vissa röð til flutnings? Var venjan sú að menn héldu þessu í föstu formi ævina út? Var um það að ræða að menn læsu bænir sínar í hálfum hljóðum eða jafnvel upphátt í rúmi sínu er iðkaðar voru. Nóg er að geta um upphöf ef um þekktar, prentaðar bænir eða bænarvers er að ræða. Hvað nefndist þessi þáttur í lífi fólksins (að fara með bænirnar sínar t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica