Laufheyskapur o.fl.
Þekktist það, að víðir eða annar runnagróður væri sleginn eða skorinn til fóðuröflunar? Hvað nefndist það? Segið frá einstökum tegundum runna, sem þannig voru notaðir til fóðurs. Segið frá sprettustöðum og aðstæðum við fóðuröflun. Segið frá verkfærum við vinnu. Segið frá þurrkun. Segið frá samantekningu í sæti eða bagga, frá bindingu í bagga og öðru er efnið varðar. Segið frá heimflutningi. Var rætt um notagildi þessa fóðurs, t.d. móti töðu eða útheyi? Þekktist það að lyng, hrís, skógur eða aðrar gróðurtegundir væru skornar eða rifnar til fóðurs og til fóðurdrýginda að sumri eða vetri? Lýsið verki og flutningum. Lýsið fóðurgjöf og öðru, er þetta efni varðar.

