Leggjaskautar, ísaleggir.

Muna menn til þess að leggir úr stórgripum (kúm, hestum) hafi verið notaðir til að renna sér á um svell? Voru framfótaleggir úr naugripum taldir bestir til þeirra nota? Hvernig voru leggirnir lagaðir til (höggnir á fletir, boraðir t.d.)? Hvað nefndust skautar af þesssri gerð? Lýsið böndum ef þau voru notuð. Nefndust þau eitthvað? Voru það e.t.v. aðeins börn og unglingar, sem notuðu skauta af þessari gerð?
Lýsið broddstöfum, sem notaðir voru með leggjaskautum. Lýsið aðfstæðum og aðferðum við að renna (skauta) um svell á leggjaskautum. Var fótum aldrei lyft frá svelli? Var stafurinn aðeins notaður á einn veg, er skautað var? Hvernig? Hvenær, um það bil, lagðist það endanlega niður að nota leggjaskauta á svellum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica