Leikir á fönnum.

Frá fornu fari hafa börn iðkað leiki úti á fönnum. Ber þar eigi síst að nefna þann leik að bruna eða renna sér niður hóla og brekkur. Til þess hafa ýmis hjálpartæki verið notuð, svo sem fjalir, bein, gaddaðar torfur og fleira. Sleðar hafa þar einnig komið mjög við sögu. Menn eru beðnir að lýsa þessum leikjum, hvernig þeir fjóru fram og hvaða tæki voru notuð fyrir brunið. Leika börn sér enn úti á fönnum með gömlu lagi?
Háðir ísi og fönnum hafa verið ýmsir aðrir leikir barna og væri ekki úr vegi að biðja menn að skrifa um þá í framhaldi af þessu. Hér má nefna t.d. gerð snjókerlinga, snjókarla og snjóhúsa, sem heyrir til nútíð engu síður en fortíð. Sama máli gegnir um gerð snjóbolta og snjókast. Áður fyrr voru dæmi þess að börn lærðu að draga til stafs á ísi eða fönnum. Sumsstaðar var viss þjóðtrú tengd því að hlaða snjókerlingu.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica