Mannbroddar, göngujárn.

Margar ólíkar gerðir mannbrodda hafa verið í notkun hér á landi og gengið undir ólíkum nöfnum. Sumar gerðir hafa verið miðaðar við göngu í fjalli, aðrar á láglendi. Menn eru beðnir að lýsa þeim gerðum af mannbroddum, sem þeir hafa vanist við og greina frá nöfnum þeirra og nöfnum á einstökum hlutum mannbrodda. Hvað hétur t.d. leðurhankar í "eyrum" mannbrodda (urgur t.d.)?
Menn urðu að læra að ganga í fjalli á mannbroddum. Hvernig var þeim beitt á göngu? Eru mannbroddar enn notaðir, þegar hart er á til fjalla á láglendi? Þjóðminjasafni Íslands væri mikil þökk að fá send sýnishorn af mannbroddum, því heildarsafn þeirra fyrir landið allt er hvergi til.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica