Matar- og drykkjarílát engjafólks.
Lýsið íláti, sem skyr var fært í á engjar. Hvað nefndist það? Var það sameiginlegt fyrir allt fólkið, sem vann saman á enginu, eða átti hver maður sitt skyrílát á engjum (engjafötu)? Voru til mismunandi gerðir slíkra skyríláta? Lýsið því.
Hvenær var byrjað að nota innflutt ílát úr bliki til að færa í skyr á engjar? Borðaði engjafólkið sameiginlega úr skyrílátinu eða var skammtað í skálar eða diska? Átti þá hver maður sína skál eða sinn disk, sem hann þekkti eftir sérstakri merkinu? Segið frá spónum og skeiðum. Hvenær lagðist það niður að nota hornspæni eða tréskeiðar á engjum?
Vita menn dæmi þess, að ólekið skyr væri sett í sérstakan malpoka (þverbakspoka) og reitt á honum á engjar?

