Matur, drykkur og matmálstímar.
Menn eru beðnir að lýsa sem best matarhæfi og matarvenjum sláttar (heyanna). Minnist m.a. eftirfarandi atriða: Voru ákveðnar tegundir matar bundnar fremur við slátt en aðrar árstíðir? Hverjar? Á hverju byggðist það? Voru máltíðir fleiri daglega um slátt en utan sláttar (þrímælt)? Lýsið þessu.
Hvað var til matar eða drykkjar, er sláttumenn fóru til sláttar að nóttu? Nefndist það nokkuð? Hvað var veitt um fótaferð? Hvað nefndist það?
Hvernig skiptist dagurinn annars niður í matmálstíma (dagmál, hádegi, miðdag, nón o.s. frv.)?
Hvað nefndist matmálstími nálægt dagmálum, og hvað var þá að jafnaði til matar eða drykkjar? Var það breytilegt?
Hvað nefndust veitingar um hádegi, og hverjar voru þær?
Var aðalmáltíð dagsins um nón? Hvað nefndist hún? Hvað var þá tíðast til matar? Lýsið á hvern hátt þetta var breytilegt frá degi til dags ef um það var að ræða. Hvenær varð sú breyting, að miðdagsmatur færðist frá nóni eða nálægum tíma til hádegis (miðað við ártal ca.)? Var gefið miðaftanskaffi, t.d., er staðið var að hirðingu? Var brauð þá e.t.v. veitt með kaffi? Var e.t.v. meira haft við í mat og drykk, er fólk stóð í ströngu við hirðingu heys?
Hvenær var kvöldmatur borðaður? Nefndist hann nokkuð annað? Hvað var helst til matar að kvöldi? Var kvöldmatur aldrei borðaður, fyrr en heyvinnufólk kom frá vinnu að kvöldi?
Var um aukaveitingar að ræða utan vissra matmálstíma t.d. farið með áfir eða mjólk út í teiginn til sláttumanna?
Voru dæmi þess, að gefinn væri ákveðinn réttur matar, er eitthvert ákveðið verk var unnið á teig, t.d. slegin viss skák eða spilda í túni eða engjum, og bæri rétturinn þá nafn af slægjublettinum? Lýsið því hvernig heyvinnufólki var gert aðvart um matmálstíma, er það gekk heim til matar frá verki (kallað hóað, veifað, breitt á hús o.s.frv.). Hvað var þetta nefnt?
Hafði heyvinnufólk nokkur ákveðin eyktamörk að fara eftir með það, er það átti að fara heim til matar eða ljúka verki að kvöldi? Lýsið hvíldartímum við kaffitíma og máltíðir. Þekkjast dæmi þess, að ekki væri sest niður til hvíldar, er drukkið var kaffi á teig?
Segið frá matarhæfi og máltíðum á sunnudögum um sláttinn. Hvað var þá einna helst til tilbreytingar frá matarhæfi á rúmhelgum dögum?

