Námskeið, skólar.
Voru haldin vefnaðarnámskeið í byggðarlaginu? Hverjir beittu sér fyrir þeim (félög, einstaklingar)? Hvenær voru þau haldin og hverjir kenndu? Hvaða vefnaðarvendir voru kenndar? Komu nýjar vendir, ný vefjarefni og ný munstur til sögunnar? Hafði þetta áhrif til breytinga almennt í byggðarlaginu? Lýsið því.
Hafa nemendur frá húsmæðraskólunum átt þátt í því að efla vefnað og breyta vefnaði frá gamalli hefð í byggðarlaginu?

