Nautajárn.
Frá fornu fari hafa bændur átt nautajárn til að grípa til, er leiða þurfti nautgripi um ísa milli bæja. Mismunandi gerðir nautajárna hafa verið í notkun. Menn eru beðnir að lýsa þeim nautajárnum, sem þeir hafa spurnir af eða hafa séð eða haft undir höndum.

