Ofanaftekning
Hvað nefndist starfið við að skilja að þel og tog í ull (að taka ofan af, ofanaftekning eða annað)? Lýsið aðferðinni við að taka ofan af ull. Hvernig hélt konan ullinni fyrir sér, er tekið var ofan af? Hafði hún t.d. toglagðinn milli þumalfingurs og vísifingurs á vinstri hendi við verkið? Kippti hún lagðinum upp með einu átaki hægri handar, eða kippti hún fáum hárum upp í senn? Hvað var það nefnt, er kona safnaði toginu upp í lófa hægri handar (hnefatog t.d.)? Var hnefatog aldrei tekið, er vinna átti tog í skóþráð eða skinnfataþráð? Lét konan toghárin falla í lár, í annað ílát eða á gólf?
Var tvisvar tekið ofan af hverju reyfi? Hvað var það nefnt að taka ofan af í seinna skiptið (að hæra t.d.)? Hversu langur tími leið milli fyrri og seinni ofanaftekningar? Hvað var gert við hærur (illhærur) úr ull?

