Önnur not af hrosshári o.fl.
Segið svo sem föng eru á frá öðrum notum af hrosshári. Minnist m.a. eftirfarandi atriða: a)hrosshár í teina á silgunganetum,
b) hrosshár í skó, t.d. sjómanna,
c) hrosshár í þvögur til að þvo með mjólkurílát, d) hrosshár í síur,
e) hrosshár í fulgasnörur,
f) hrosshár í stað fiskióla,
g) tátiljur,
h) sópa,
i) hrosshár (búkhár) í reiðtygi, dýnur og illleppa.
Vita menn dæmi þess að hrosshár hafi verið unnið ísigbönd bjargmanna?
Segið frá þarfaböndum úr hrosshári öðrum en þeim sem áður eru talin (kýrhöft t.d.).
Var algengt að leggja í bú frumbýlinga í gjöfum t.d. reipi, gjarðir, beisli o.s.frv.?
Segið frá gangverði á munum úr hrosshári.
Eru til vísur, orðtök eða annar fróðleikur en fram er kominn um hrosshár eða hrosshársvinnu?
Hvenær lagðist hrosshársvinna niður?

