Orð og merking orða
Er orðið rúm í merkingunni svefnstaður eða sængurstaður einna helst bundið við uppbúið rúm, þ.e. rúm með öllum sængurfatnaði? Hefur orðið rekkja einna helst verið notað í samsettum orðum (rekkjunautur, rekkjufélagi, rekkjutjald o.s.frv.)?
Er orðið rúmstæði notað um rúm án sængurfatnaðar? Hefur það verið notað um staðinn, sem rúmið stendur á (sængurstaðinn)? Hafa sérstök orð verið notuð um óvönduð eða léleg rúm (rúmbæli, rúmflet t.d.)? Var orðið rúmbálkur einna helst notað um hart eða óþægilegt rúm? Hefur orðið beður eða rúmbeður yfirleitt ekki verið notað í mæltu máli? Hefur orðið flatsæng aðeins verið notað um það, er manni var búinn svefnstaður á gólfi? Hefur orðið sæng annars í seinni tíð ekki verið notað um svefnstaðinn sjálfan nema t.d. í sérmerkingum eins og sængurkona og að leggjast á sæng?
Á hvern hátt er orðið skör tengt rúmi? Nefndist gólfborðið framan við rúmið því nafni?

