Ormeldúkur.

Hvað nefndist þessi vefnaðarvend (ormeldúkur, vormeldúkur eða annað)? Lýsið uppistöðu mismunandi ormeldúka (efni og gerð). Lýsið litum (sauðarlitir, jurtalitir, útlendir litir). Var talað um bandormeldúk og þráðarormeldúk eftir því, á hvoru bar meira í rétthverfu dúksins, ívafi eða uppistöðu? Hvort var þá algengara, bandormeldúkur og þráðarormeldúkur? Fór það ef til vill eftir því til hvers átti að nota dúkinn? Hvaða flíkur eða hlutir voru einkum með ormeldúksvend (yfirhafnir karlmanna, ígangsföt karlmanna, spariföt karlmanna, svo sem reiðföt, peysufatasjöl og millipils, fiðurheldur dúkur o.s.frv.)? Þekktist það, að dúkur í millipils kvenna væri ofinn að nokkru leyti með einskeftuvend og að nokkru leyti með ormeldúksvend (bekkjapils)? Lýsið því. Voru ofnar mismunandi gerðir af ormeldúksbekkjum (tenntur ormeldúkur t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica