Regnboginn
Nefndist regnbogi eitthvað annað (friðarbogi t.d.)? Undir hvaða nafni gekk hann að jafnaði? Var nokkurt fast orðtak manna, er regnbogi sást í skýjum (Friður sé milli himins og jarðar o.s.frv. t.d.)? Var því fagnað, er regnbogi sást í skýjum í illviðratíð? Var regnbogi annars talinn á einhvern hátt veðurmerki? Var almennt um það talað, að maður fengi ósk sína uppfylllta, ef hann kæmist undir annanhvorn enda regnbogans?
Hvað nefndist regnbogstúfur, sem stundum sást í skýjum til hafs (hafgall, hafgalli t.d.)? Var eitthvert mark tekið á honum gagnvart veðri?

