Reiðingur

Mismunandi efni hefur verið notað í reiðinga og gengið frá því með misjöfnum hætti í einstökum landshlutum. Menn eru beðnir að lýsa reiðingum, gerð þeirra og efni (torf, melreiðingar, stoppaðar dýnur) og greina frá einstökum heitum þeirra.
Var miðað við ákveðin mál, er ákveðin var stærð á reiðingum (álagstorfum, dýnum o.s.frv.)?
Melreiðingar hafa verið gerðir, þar sem efni í þá var fyrir hendi, á dreifðum stöðum á landinu. Sérstaklega er mikilsvert að fá glöggar lýsingar á gerð þeirra, efnissöfnun, mismunandi tegundum róta, er notaðar voru og þá á hvern hátt og hversu að því var unnið að leggja efnið saman og sauma það.
Gengu reiðingar kaupum og sölum? Gilti þá fast verðlag, og á hvern hátt var það breytilegt eftir tegundum? Segið frá endingu reiðinga.
Voru sérstakir leppar (ofnir t.d.) notaðir til að hlífa hrossum við að særast á baki undir reiðingi?
Hvað nefndust bólur, sem hlupu upp á hrossum undan reiðingi (vermibólur t.d.)? Hvernig læknuðu menn sár, er komu á hross undan reiðingi?
Hvar geymdu bændur klyfbera og reiðinga utan sláttar, og hvernig var frá þeim gengið?
Hvar voru klyfberar og reiðingar að jafnaði geymdir um slátt milli nota?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica