Reiðver og ístöð.
Hafði heyvinnufólk og þeir , sem voru í milliferðum við færslu matar, sérstök reiðver til að nota í engjaferðum (gæruskinn, ullar- eða melþófar o.s.frv.)? Lýsið því? Hafði fólk þá einnig sérstök lausaístöð (engjaístöð) til að nota í þeim ferðum? Hvað nefndust þau? Lýsið þeim. Var hverjum ætlað ákveðið beisli og ákveðin hnapphelda til að nota um sláttinn? Hvernig svipur eða keyri höfðu menn til að nota í engjaferðum? Lýsið varðveislu þessara hluta milli nota og öðru, er efnið varðar.

