Rekkjunautar
Var það einna algengast að tveir svæfu saman í rúmi? Var ákveðið orð notað um þá er sváfu saman í rúmi (rekkjufélagar, lagsmenn, hjálúrur o.s.frv.)? Var talað um það að sofa andfætis eða sofa upp í arminn eftir því hvort höfuð vissu að höfðalagi og fótagafli eða bæði að fótagafli, er sofið var af fleirum en einum í sama rúmi?

