Rúmbotn

Hafa menn sagnir af rúmbálkum hlöðnum úr torfi í baðstofum eða svefnhúsum fyrri tíða? Lýsið rúmbotni í baðstofurúmum. Þekktist það að torf væri neðst í rúmbotni, ofan á fjölum? Var um mismunandi efni að ræða til að leggja í rúmbotn til mýkinda, undir undirsæng (skógarlim, hrís, heflispæni, hey t.d.)? Tók þetta nafn af notum (rúmhey, rúmhroði, rúmruddi t.d.)? Voru dæmi þess að gripið væri til þessa undirlags til að gefa skepnum í harðindum? Var árlega skipt um þetta undirlag? Hvenær? Hvað var breitt ofan á þetta undirlag í rúmi? Hvenær var byrjað á því að hafa heydínur í rúmum (í striga eða á annan hátt)? Voru gerðar sérstakar rúmdínur úr búkhári dýra, jafnvel hrosshári, ull eða öðrum efnum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica