Rúmfjalir
Fylgdi rúmfjöl hverju rúmi í baðstofu? Var rætt um ákveðið notagildi þess að hafa rúmfjöl við stokk að nóttu?Var algengt að rúmfjalir væru skreyttar útskurði eða með fangamarki eiganda? Kunna menn að segja frá tréskerum, sem skreyttu rúmfjalir fyrir e.t.v. heil byggðalög? Muna menn til áletrana á horfnum rúmfjölum? Er hægt að tilfæra dæmi um eyðingu einstakra rúmfjala eða hvernig þær voru e.t.v. teknar til annarra nota, er hætt var að hafa þær við rúm? Höfðu rúmfjalir víðtækara notagildi en merking orðsins rúmfjöl ein gefur til kynna (t.d. til að vefja á nýofnar voðir, nota sem hnéborð við spil, nota til að renna sér á á fönnum o.s.frv.)?
Var ótrú höfð á því að setja rúmfjöl fram við stokk að degi til og þá hversvegna?
Hvenær lagðist það af að nota rúmfjalir?

