Rúmföt
Hvaða orð voru notuð um einstaka hluta rúmfata (rekkjuvoð, rekkvoð, lak, sængurver, koddaver o.s.frv.)? Var orðið rekkvoð (rekkjuvoð) einkum bundið við heimaofna voð, sem menn höfðu undir sér og yfir í rúmi, e.t.v. án yfirsængur? Voru rekkvoðir ofnar úr heimaunnum þræði að uppistöðu og ívafi eða aðeins að ívafi (fyrirvafi)? Lýsið vefnaði (vaðmálsvend, einskefta t.d.). Hafa slíkar heimaunnar rekkvoðir (rekkjuvoðir) haldist til skamms tíma?
Var ofið heima efni í sængurver og koddaver? Lýsið því. Var algengt að ungar stúlkur saumuðu sér í búið vönduð sængurver og koddaver með milliverki og blúndum t.d.? Saumuðu þær sér með sama hætti í barnarúm eða vöggu? Áttu flest heimili rúmföt, sem einna helst var gripið til ef næturgest bar að garði (í gestarúmið)?
Muna menn til þess, er heimaofin brekán eða teppi voru almenn á rúmum? Urðu salúnsofin teppi á tímabili allsráðandi, sem ábreiður á rúmum? Muna menn til þess að glitofin teppi hafi verið breidd yfir rúm?

