Rúm í hjónahúsi og gestastofu

Segið frá því, sem greindi hjónarúm og gestarúm í hjónahúsi eða gestastofu frá baðstofurúmum. Voru þau rúm stundum hluti af innsmíði hússins og þá e.t.v. sem nokkurskonar lokrekkja? Þekktust rúm, sem hægt var að draga í sundur, ýmist til að breikka eða lengja? Vita menn, hvenær þau komu fyrst í notkun? Gat stofurúm gengt hlutverki rúms og setubekks (slagbekkur)? Var vandað meir til smíði á hjónarúmum og gestarúmum en til smíði á öðrum rúmum? Var oft leitað til lærðra smiða (snikkara) er smíða skyldi slík rúm? Fylgdust oft að smíði á herbergi og rúmi? Viti menn, hvenær svefnsóffar (fjaðradívanar) taka að ryðja sér til rúms í stofum á sveitaheimilum?
Er enn sofið í rúmum af gamalli gerð?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica