Skrá 11. Gestakomur

Sæng og svefn

Hvernig var búið um rúm næturgests? Var það e.t.v. yljað með einhverjum hætti, ef kalt var í veðri? Var algengt, að húsbændur, eða aðrir gengju úr rúmi fyrir næturgesti? Hver vísaði gesti til sængur og hvað var það nefnt (fylgja til sængur, vísa til sængur t.d.)? Var fast orðaval notað, er gesti var boðin góð nótt? Hvernig? Gegndi svipuðu máli, er honum var boðinn góður dagur? Var venja að spyrja gesti, hvað þá hefði dreymt? Var meira að marka drauma á ókunnum stöðum en öðrum? Gat gesturinn gert eitthvað til að tryggja það (telja rúður í glugga t.d.)? Var gestinum fært morgunkaffið í rúmið?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica