Sængur og koddar

Hafa menn sagnir frá þeim tíma, er efni eins og fífa eða mosi (dýjamosi t.d.) voru notuð í einhverju mæli í sængur eða kodda?
Segið frá fiðuröflun og fiðurkaupum til sængurfatnaðar, verði og vöruskiptum og öðru, sem efnið varðar. Af hvaða fuglategundum fékkst einkum fiður til sængurfatnaðar? Voru fuglsfjaðrir notaðar með fiðri til sængurfatnaðar (fanir rifnar niður)? Segið frá hreinsun og verkun fiðurs (fýlafiðurs t.d.) til sængurfatnaðar.
Var völ á dúni til sængurfatnaðar, heimafengnum eða aðkeyptum? Segið frá verði og kaupum.
Hvað þótti hæfileg þyngd af fiðri í undirsæng? Hvað þótti hæfilegt í yfirsæng? Hvað þótti hæfileg þyngd af dúni í yfirsæng? Var boldang notað í undirsængur? Var völ á nægu fiðurheldu lérepti til sængurfatnaðar? Voru dæmi þess að fiðurhelt efni væri ofið heima úr útlendum tvisti? Var stundum gripið til þess að bera sundmagalím á lérept til að gera það fiðurhelt?
Vita menn til þess að eltiskinn hafi stundum verið notað utan um kodda og svæfla? Var yfirleitt gerður greinamunur á koddum og svæflum eftir stærð?
Vita menn hvenær sú breyting varð á að sjálfsagt þótti að undirsæng og yfirsæng væri í hverju rúmi?
Segið frá endingu og hirðingu fiðurs og dúns í sængum og koddum.
Hvenær lagðist það almennt niður að nota undirsængur (fiðursængur) í rúmum og taka upp dínur (stangaðar dínur, fjaðradínur o.s.frv.) í þeirra stað?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica