Sæti.

Að sæta sátu, setja í sæti, sáta hey, o.s.frv.
Lýsið sætingu heys. Minnist m.a. eftirfarandi atriða: Hvað nefndist verkið við að setja hey upp í sæti til bindingar eða til að hlífa því gegn regni? Hve mörg heyföng voru að jafnaði sett í sátu eða bagga? Hvernig var fyrsta fang sett á reipi? Nefndust föngin nokkuð sérstakt miðað við, hvar þau voru lögð í sátuna? Var föngunum þrýst þétt niður í sátuna? Hvað nefndust einstakir hlutar fullgerðrar sátu (sátubotn, sátuhaus, sátuendi, sátukollur o.s.frv.)? Var sæti, er átti að standa á teig, að jafnaði látið snúa í helstu vindátt eða regnátt?
Hvað var það nefnt ef sett var hey á reipi eins og það framast tók í bindingu (reipafylllir t.d.)? Var við það miðað, að sátur væru sem jafnastar að stærð, svo betur færu baggar á hestum við heimflutning? Var rakað utan úr sátum til snyrtingar um leið og sætt var? Hvað nefndist það (að kemba sátu eða annað)?
Kom fyrir að sætt væri reipalaust? Við hvaða aðstæður? Hvað nefndist þá verkið við að koma reipi undir sátu (að drepa undir eða annað)? Lýsið því.
Hvenær var byrjað á því að verja sæti, er stóð lengri eða skemmri tíma á teig, gegn regni með yfirbreiðslum úr striga eða öðru efni? Lýsið því. Hvað nefndist það, er staðið sæti varð fyrir skemmdum af regni (drepið, botndrepið, t.d)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica