Sagnir og annað sem efnið varðar.

Óteljandi eru þau smáatriði, sem hægt væri að spyrja um, og auk þess ærið mörg, sem okkur brestur einfaldlega kunnugleika til að spyrja um. Það er því ósk okkar, að þið bætið við hverju því atriði, sem ykkur kemur í hug í þessu sambandi, hversu lítilfjörlegt sem ykkur kann að þykja það. Það er aldrei að vita, nema slíkt geti leitt okkur á nýtt spor.
Þá er einkar gaman að fá smásögur t.d. um einstaka afreksmenn og konur á sviði heyskapar, hvort sem þær eru dagsannar eða færðar ofurlítið í stílinn. Nokkrar slíkar sögur eru t.d. kunnar af Magnúsi sálarháska, en margar munu þó aldrei hafa verið skráðar. En frásagnir hljóta að vera til um fleira dugnaðarfólk, þótt ekki séu á sömu bókina lærðar. Allar þjóðsagnir varðandi slátt, rakstur og heyskap yfirleitt væru ennfremur vel þegnar.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica