Salún.
Hvað nefndist þessi vefnaðargerð (salon, salún, sálún t.d.)? Hvaða hlutir voru unnir með salúnsvefnaði (t.d. rúmábreiður eingöngu)? Lýsið uppruna og útbreiðslu þessarar vefnaðargerðar í byggð yðar hafi hún ekki verið iðkuð þar frá fornu fari. Lýsið vefjaefni (uppistöðu og ívafi, efni og gerð). Lýsið litavali (sauðarlitir, jurtalitir o.s.. frv.). Lýsið vefnaðarmunstrum. Voru vefnaðarmunstrin nefnd ákveðnum nöfnum? Greinið frá þeim.
Var algengt, að vefarar hugsuðu sjálfir (fyndu upp) munstur sín? Höfðu þeir ákveðnar fyrirmyndir í gömlum hlutum, á teiknuðum blöðum eða í skrifuðum forsögnum? Breyttust salúnsmunstur vegna áhrifa vefnaðarbóka og húsmæðraskóla? Þöktu salúnsmunstrin yfirleitt allan vefflötinn? Voru dæmi þess, að salúnsmunstrin væru í bekkjum og munsturlausar randir milli þeirra? Hvað nefndist það (bekkjasalún t.d.)?
Voru það einstakir vefarar öðrum fremur, sem lögðu fyrir sig salúnsvefnað og breiddu hann út meðal almennings? Segið frá verði á salúnsábreiðum.
Voru dæmi þess að salúnsábreiður væru aðeins breiddar yfir rúm á helgum dögum og hátíðum en brekán þar fyrir utan? Hvenær lagðist salúnsvefnaður niður sem heimilisiðnaður? Eru salúnsábreiður enn í notkun á heimilum?

