Samantekning, að taka saman hey.
Hvað felst í orðunum að taka saman og samantekning um heyvinnu? Voru þau notuð um alla samantekningu heys til að hlífa því gegn regni eða e.t.v. aðeins um samantekningu til hirðingar? Hvaða orðum var farið um hey á mismunandi stigum þurrkunar (haugur, haugblautt, hráblautt, blautt, lint, liskrótt, með liskrum, grasþurrt, hálfþurrt, hirðandi, þurrt, skráþurrt, skraufþurrt, brakþurrt, o.s.frv.)?

