Skrá 14. Ull og tóvinna II
Samkemba
Hvernig var mismunandi ullarlitum blandað saman í kembingu? Hvað var verkið nefnt (að samkemba t.d.)? Var alltaf tvíkembt í samkembingu? Voru viss heiti um það (fyrirkembing, eftirkembing t.d.)? Var kembum í fyrirkembingu staflað í hrúgu? Nefndist hún eitthvað (kembubunki t.d.)? Var ein, heil kemba gerð úr fyrirkembingunni? Hvernig? Hvað nefndist hún (samkemba, vindill t.d.)? Hvernig var gengið frá henni (vafin inn í dúk t.d.)? Lýsið eftirkembingu. Hvernig var kembuefni unnið úr samkembunni í eftirkembinguna? Hvað nefndist þá hvert kembuefni (hnoðri, hvolpur t.d.)? Var þetta gert jafnóðum og kembt var eða í einni atrennu?

