Fóðrun og fénaðarhöld

Lýsið á hvern hátt bændur fylgdust með þrifum eða fóðrun sauðfjár um gjafatíma. Voru ákveðin einkenni í holdafari sem við var miðað í þeirri athugun?

Lýsið því og greinið frá orðum sem um það voru höfð (brúnslétt, farin að skarða, flagnar frá, grip milli spaða, bjórhál, komin á merg, bláskörðuð, orðin grönn, merglaus, illa fær, reisa, með horpoka o.s.frv.). Lýsið á hvern hátt tekið var mark á hornahlaupum gemsa er dæmt var um fóðrun.
Voru kindur "teknar frá" þ.e. gefið sér í húsi ef þær "átust úr" eða voru með sérstökum vanþrifum? Lýsið því.
Segið frá áliti manna varðandi framgengið fé að vori sem kom m.a. fram í leik gemsa eða því að kind bar það með sér að hún var "ekki á horleggjum". Var það almennt að bændur ræddu um fénaðarhöld er fundum bar saman?
Lýsið áliti manna á einstökum bændum miðað við það hvort þeir fór vel eða illa með fénað (horkóngur t.d.).


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica