Skautaferðir.

Minnist m.a. eftirfrandi atriða:
Hvað nefndist sú íþrótt að fara á skautum (skautahlaup t.d.)? Var orðið skautasvell miðað við svell með sérstakri áferð (yfirborði)? Voru skautahlaup (skautaferðir) almennt iðkaðar, er færi gafst, sem íþrótt og skemmtun. Voru skautar einnig notaðir til ferðalaga milli bæja eða byggða, er gott skautasvell gafst? Var algengt að börn og unglingar, jafnvel fullorðið fólk, söfnuðust saman á vetrum til að renna eða hlaupa á skautum? Á hvaða tíma sólarhringsins einna helst (rökkri, kvöldum t.d.)? Var algengt að hafa göngustaf meðferðis, er hlaupið var á skautum? Voru dæmi þess að menn beinlínis stofnuðu félagsskap um skautahlaup? Segið frá öðru, sem þessa íþrótt varðar og þýðingu hennar fyrir einstaklinga og samfélag. Er nokkur skáldskapur varðveittur varðandi skautahlaup? Er skautahlaup nú minni þáttur í skemmtun fólks að vetri en áður var?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica