Skíði.
Er skíðaíþrótt þekkt frá fornu fari í byggðinni? Voru skíði almennt í eigu fólks, barna og fullorðinna? Minnast menn heimagerðra skíða? Segið, ef tök eru á, frá skíðum og skíðasmiðum. Var sérstakur viður sérstaklega kjörinn sem skíðaviður? Hvernig var unnið að skíðasmíði? Gerið sérstaklega grein fyrir því, hvernig unnið var að því að setja varanleg tábeygju á skíði. Segið frá stærð skíða. Lýsið tábandi. Voru dæmi þess að börn notuðust við ófullkomin skíði (t.d. tunnustafi), er þau byrjuðu að renna sér á snjó í líkingu við skíðamenn? Hvað er að segja um endingu íslenskra skíða? Eru heimasmíðuð skíði enn til á bæjum? Hvenær fóru innflutt skíði að ná útbreiðslu?

