Skilnaðarkveðjur
Var algengt að ríða með gesti úr hlaði eða fylgja honum á götu? Höfðu konur þá prjóna sína meðferðis? Gerðu þær það yfirleitt, er þær gengu milli bæja? Hvernig féll skilnaðarkveðjan hjá gestinum (Vertu blessaður og sæll og feginn vil ég eiga þig að t.d.)? Hverju svöruðu húsbændur? Þekkist þessi málsháttur um vinaskilnað: Ekki veit, hvort augun sjást, er hnakkarnir skilja? Hvað var sagt um gesti, sem ræktu illa kveðjur og þakkir (Kemur eins og hundur, fer eins og hundur t.d.)?
Almennur fróðleikur um gesti Skrifið vísur eða þulur um gesti, ef völ er á í minni manna. Segið frá minnisstæðum gestum. Segið frá gildi gesta fyrir heimili og þjóðlíf yfirleitt.

