Slægja.

Var orðið slægja notað um gras á túni og engi? Greinið frá þeim orðum, sem notuð voru um slægju eftir þéttleika grass og hæð (góð, sæmileg, léleg, vond slægja, kafagras, síbreiða, loðið, rótarslægja, þarf ekki að raka að flekk, fellur vel á teig, flekkjar sig, liggur á hálfum teig, ljáfyllir, ljáfyllingur, rægja, ræpingur, sneggja, snöggt, nauðsnöggt, sætist vel upp (o.s.frv.). Var orðið óslægja (eða annað) notað um óslegið land? Hvað nefndist jaðar á óslegnu landi, þar sem það mætti slegnu landi (mön eða annað)? Hvað nefndist það, er búið var að slá tún og engi (allt slegið upp, slegnir allir teigar, teigslegið, hvert strá slegið o.s. frv.)


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica