Sláttur hafinn.

Miðuðu bændur almennt við það að afla ákveðins heymagns til vetrarforða? Var nokkur áætlun gerð um það, hve miklu magni heys ákveðinn fjöldi fólks ætti að koma í garð eða hlöðu um sláttinn í sæmilegri tíð. Var við það miðað m.a. í ráðningu kaupafólks? Lýsið því.
Kunna menn að segja frá ráðningu og kjörum kaupafólks miðað við eldri og yngri tíma?
Var almennt farið rólega af stað með sláttinn? Var sláttur almennt greindur í tvö tímabil, túnaslátt og engjaslátt? Lýsið fyrsta slætti heima við hús eða bæi.
Hve snemma að morgni var gengið út að slætti og hve snemma hætt að kvöldi? Var slætti hætt fyrr á laugardagskvöldum en önnur kvöld vikunnar?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica