Sleðar, sleðaferðir.
Voru sleðlar almennt notaðir til flutninga, er sleðafæri gafst á vetrum? Hvað hétu einstakir hlutar sleða? Lýsið sleðum, smíðaefni og smíði. Minnist m.a. eftirfarandi atriða: Þóttu vissar trjátegundir öðrum fremur kjörnar sem sleðlaviður (eik t.d.)? Voru dæmi þess að sleðameiðar væru gerðir úr hvelbeini? Var járndrag yfirleitt fest neðan í sleðameiða?
Segið frá því ef um ólíkar gerðir sleða var að ræða og þá til mismunandi nota. Áttu sleðar mismunandi nöfn (grjótsleði, mykjusleði, heysleði o.s.frv.)?
Hvernig voru sleðar tengdir við dráttarhesta í flutningum (aktaumar, sleðakjálkar t.d.) Lýsið sérstaklega sleðakjálkum, ef þeir eru þekktir, og tengingu þeirra við sleða og hest.
Lýsið flutningum á sleðum og þýðingu þeirra fyrir aðdrætti og samgöngur á vetrum (reki frá sjó, grjótflutningur, heyflutningur, aðdrættir úr kaupstað, mykja á tún, sjúkraflutningur o.s.frv.)?
Á síðustu árum haf vélsleðar komið til sögunnar, en hafa menn enn not af sleðum að gömlu lagi? Eiga menn minningar um sögulegar sleðaferðir frá fyrri tíð?

