Spunarokkur

Óskað er eftir sem mestri fræðslu um spunarokka, rokkasmíði og rokkasmiði, mismunandi gerðir af rokkum og yfirleitt allt, er það efni varðar. Heimildarmenn eru m.a. beðnir að hafa eftirfarandi atriði í huga: Lýsing á einstökum rokkgerðum, svo í smáu sem stóru, og heiti á rokkum. Voru rokkar smíðaðir til alveg sérstakra nota (spunarokkur, tvinningarokkur, hrosshársrokkur o.s.frv.)? Muna menn eftir rokkum með hjólum smíðuðum úr heilli fjöl? Nefndust þau hjól nokkuð (borðhjól t.d.)? Lýsið þeim. Voru þau t.d. útskorin eða skreytt á annan hátt? Segið frá öðrum atriðum í sambandi við rokkhjól (hjól með blý- eða látúnsgjörð t.d.). Voru rokkar með tveimur hjólum í notkun? Voru rokkar með hliðarhjóli í notkun? Nefndust þeir eitthvað sérstakt (skotrokkur, vambarokkur t.d.)? Voru dæmi þess, að rokkar væru lítt eða ekki renndir? Muna menn eftir ómáluðum rokkum? Hvenær hyggja menn, að rokkasmiðir hafi almennt farið að mála rokka sína? Lýsið festingum fyrir hnokkatré (brúðum, skrúfnöglum). Þekktust fleiri en ein gerð af brúðum (heilbrúða, hálfbrúða t.d.)? Vita menn nokkuð um uppruna hálfbrúðu? Lýsið smíði á hnokkatrjám (málmur, tré, bein). Kannast menn við orðin rokkvirki og snælduumbúningur? Hver var merking þeirra? Voru til rokkar með aðeins einum uppstandara að framan? Smíðuðu rokkasmiðir sjálfir alla málmsmíði til rokka? Lýsið skreytingu á rokkum (beintappir, bólur t.d.). Voru útlendir rokkar í notkun? Smíðuðu íslenskir rokkasmiðir rokka eftir þeim? Voru fiskbein (kerlingarprjónar) notuð í hnokka við spuna? Lýsið hnokkum, efni þeirra og smíði. Hvaða efni var notað í rokksnúrur? Lýsið rokksnúrum, efni þeirra og gerð. Hvaða efni voru notuð til að varna snúningssliti við rokkspuna (feiti, leður)? Lýsið því. Hvaða not höfðu menn einkum af gömlum slitnum rokkum (tvinningarokkur, breytt í spólurokk t.d.)?
Segið frá einstökum rokkasmiðum, áhöldum þeirra og smíði, eftir því sem tök eru á. Segið frá gangverði á rokkum. Var algengt að vinnukonur ættu sjálfar rokkana, sem þær spunnu á? Var algengt að nota rokka til gjafa? Var rokkum gefið eiginnafn (kenndir við rokkasmiðina t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica