Spuni
Hvar voru rokkar geymdir milli þess sem spunnið var á þá? Voru geymslustaðir e.t.v. kenndir við rokka (rokkaskot, rokkakompa)? Hvar lögðu konur rokka frá sér, er þeir voru í daglegri notkun og þær brugðu sér frá (við rúmbrík eða upp í rúm t.d.)?
Lýsið spuna. Hvaða orðum var farið um áferð bands eða þráðar, miðað við gildleika (lo. t.d. dáfínt, dárfínt, hárfínt, no. t.d. groddi, gubb, loddi, læpa, rubb, so. t.d. gubba, rubba)? Segið frá merkingarmun orða. Hvað nefndust mjórri bilin í ójöfnu (illa spunnu) bandi (bláþráður t.d.)? Hvað nefndist snúningur á þræði og bandi (snúður t.d.)? Hvað var það nefnt, ef þráður var mjög snúðlinur (hann lóðgar saman t.d.)? Hvaða orðum var farið um spunann sjálfan (að teymra, teygja lopann, spinna við fingur, þeyta rokkinn)? Segið frá merkingarmun orða miðað við spunalag og annað. Hvað var það nefnt, er búið var að spinna snældu fylli (snældan er hnokkafull t.d.)? Hvað nefndist verkið við að skipta um snældu (að taka af rokknum t.d.)? Hvernig náðu spunakonur fram þráðarenda, ef slitnaði upp við snælduteinspípuna, er spunnið var (notuðu krækju, sugu endann fram t.d.)? Hvað var það nefnt, ef rokksnúran hrökk af hjólinu (að rokkurinn kastaði af sér t.d.)? Þótti það vita á eitthvað, t.d. gestakomu, ef rokkurinn var venju fremur ódæll við spuna?
Var algengt að konur syngju eða kvæðu við spuna, fremur en við önnur verk? Voru þess dæmi, að konur t.d. leiðbeindu börnum við nám eða litu í bók um leið og þær spunnu?
Fengust karlmenn við rokkspuna? Á hvaða aldri byrjuðu stúlkur að spinna? Var nokkurn tíma spunnið á helgum dögum? Tíðkaðist nokkur tóvinna á helgum dögum? Höfðu einstakar konur atvinnu af því að spinna, eða af tóvinnu yfirleitt (húskonur, lausakonur t.d.)? Segið frá því. Skrifið vísur um rokk og rokkspuna.

