Spunnið á halasnældu
Lýsið hrosshársspuna á halasnældu. Stóð spunamaðurinn eða sat við verkið? Lýsið hvernig tekin er fram lyppa úr vindli og snældunni snúið. Hvað nefndist snúningur snældunnar í hendi spunamanns (snældukings t.d.)? Var það nefnt eitthvað sérstakt, t.d. að rota köttinn, ef manni fórst illa eða ekki rétt að vinda þráð upp á snældu? Var lögð áhersta á að vanda snúðinn á þræðinum? Var sverleiki misjafn eftir því til hvers átti að nota þráðinn?

