Stjörnur

Lá bann við því að reyna að telja stjörnur? Hvað lá við, ef út af var brugið?
Var mark tekið á því gagnvart veðri, ef stjörnur blikuðu mikið (titruðu)? Hvaða veður var þá í vændum?
Var mark tekið á því gagnvart veðri, ef himinn var þéttstirndur sem kallað var? Hvaða veður var þá í vændum?
Var spáð fyrir veðri eftir einstökum stjörnur eða stjörnumerkjum? Lýsið því.
Voru einstakir menn, sem kunnu að lesa á vetrarbrautina og spá fyrir vetri eftir henni? Lýsið því.
Var því trúað, að stjörnuhrap boðaði eitthvað sérstakt,
a) í vöku, b) í draumi, og fór það e.t.v. eitthvað eftir því, hvort um eitt einstakt stjörnuhrap var að ræða eða mörg stjörnuhröp samtímis?
Hvað boðuðu stjörnur himins í draumi?
Voru uppi menn, sem voru fróðir um stjörnur (stjörnufróðir) og iðkuðu að segja fyrir um ævi manna og forlög eftir stöðu stjarna? Gekk skráður fróðleikur um það efni milli manna?
Kunna menn óskráðar sagnir eða vísur tengdar stjörnum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica