Skrá 6. Að koma mjólk í mat

H. Sýra.

1 a) var skyrmysu safnað í sérstakt ker? Hvað nefndist hún (sýra eða annað)?
b) Hvað nefndist gerð (efnabreyting) í sýru (sýran brýtur sig, ryður sig eða annað)?
c) Hvað nefndist botnfall í sýru (kjór, jastur eða annað)?
d) Hvað nefndist skán, sem myndaðist ofan á sýru (hjastur, jastur, gráði, skilma, skúm eða annað)?
e) Var sérstaklegaa vandað til verkunar á sýru, sem nota átti til drykkjar? Hvernig var hreinsun hennar háttað? Hvenær var hún talin fullgild til drykkjar (tveggja ára t.d.)?
f) Hvað var gert við sýru, sem staðið hafði á slátari?
g) Var fast gangverð á sýru í viðskiptum? Voru farnar sýruferðir til verstöðva? Lýsið þeim.

2. a) Þekkjast sagnair um það, að skyr og sýra hafi verið soðin saman til matar? Hvað hét sá réttur (strjúgur eða annað)?
b) Voru bein lögð í sýru og notuð til matar? Hvað kölluðust þau þá (beinastrjúgur t.d.)?
c) Hvaða matvæli voru geymd í sýru, önnur en slátur?
d) Var hlemmur látinn fljóta ofan á sýru? Hvað var hann kallaður (sýruhlemmur t.d.)?




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica