Tennur.

Vita menn dæmi þess, að barn hafi fæðst með tönn eða tönnum? Nefndust þær þá einhverju sérstöku nafni? Fylgdi því einhver trú? Segið frá því, er barn fór að taka tennur. Nefndist fyrsta tönn barns eitthvað sérstakt, og fór það eftir því, hvort barnið var piltur eða stúlka? Var það venja að gefa barni eitthvað (tannfé), er það tók fyrstu tönn? Hver gaf gjöfina? Hvað var helst gefið? Segið frá varðveislu tannfés.
Segið frá varðveislu barnstanna, er börn tóku að missa þær. Hvar var þeim fyrir komið og hvernig um þær búið? Fylgdi því einhver sérstakur formáli, er búið var um barnstönn eða er frá henni var gengið, ef henni var ekki fleygt líkt og ónýtum hlut?
Segið frá nöfnum fullorðinstanna. Var með einhverjum hætti tekið mark á lögun og útliti tanna (blettir í tönnum t.d.)? Lýsið varðveislu fullorðinstanna, sem losnuðu eða dregnar voru út. Hvar var þeim fyrirkomið og hvernig var um þær búið? Fylgdi nokkur fastur formáli? Greinið frá orðtökum eða málsháttum, er víkja að tönnum og notuð voru í daglegu máli. Kunna menn vísur eða þulur um tennur?
Segið frá tannpínu og öllum tiltækum ráðum til bóta eða lækninga á henni. Sérstaklega er mikilsvert, að ekkert sé látið undan falla af því, sem telja má til gamalla, heimfenginna ráða, sem tengd voru þjóðtrú eða af öðrum rótum runnin. Voru dæmi þess, að ólærðir menn fengjust við að draga tennur úr mönnum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica