Spurt um aðferðir við skinnverkun og fleira

Þekktust fleiri aðferðir við skinnaverkun? Hvað réði því, hvaða verkunaraðferð var notuð hverju sinni? Segið frá aldri verkunaraðferða, eftir því sem um er vitað. Hver annaðist verkunina aðallega?

 

Bryddingaskinn.

Hvað skinn voru einkum notuð í bryddingar á skó? Voru margar aðferðir við að elta skinn í bryddingar? Lesa meira
 

Þvengjaskinn.

Voru viss skinn, öðrum fremur, notuð í þvengi, og var þá sérstaklega miðað við mýkt þeirra og seigju? Var sérstaklega sælst til að nota skinn af horuðu fé eða sjálfdauðu í þvengi? Að hvaða leyti þótti það hentugt? Lesa meira
 

Seymi.

Hvað nefndust dýrasinar, sem notaðar voru við skósaum (seymi t.d.)? Var seymi nefnt eftir því úr hvaða skepnu það var (nautsseymi, hrossseymi, hvalseymi, o.s.frv.)? Var seymi oft tekið úr hrossum, er þeim var slátrað? Hvar var seymið tekið af skepnunni (innan af hrygg, bógum eða vélinda)? Lýsið verkinu. Lesa meira
 

Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica