Skrá 14. Ull og tóvinna II

Þelkambar

Segið frá þelkömbum, gerð þeirra og heitum. Voru þelkambar t.d. misjafnlega tenntir (gistenntir, þétttenntir)? Var heiti kamba e.t.v. miðað við það og talað um einfalda og tvöfalda kamba? Voru mismunandi heiti til um þelkamba (körður, karkambar t.d.)? Voru kambar misjafnleg stórir (stólkambar t.d.)? Lýsið stólkömbum sértaklega og segið frá notkun þeirra. Hvað var gert við gamla og slitna kamba? Hvaða not höfðu menn helst af þeim? Segið frá kambasmíði, áhöldum við kambasmíði og kambasmiðum, ef auðið er.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica