Þerriblettir, rosablettir.
Voru ákveðnir blettir eða reitir í slægjum, sem menn höfðu þá trú á, að heyþurrkur brygðist aldrei á? Var e.t.v. í einhverju miðað við þá trú, er slíkir staðir voru slegnir? Bera staðir nöfn eftir þessu (Þerrihóll t.d.)? Var því einnig trúað, að rosi eða regn kæmi, er einhver ákveðinn blettur var sleginn (rosablettur)? Segið frá slíkum stöðum, ef tök eru á, og tilgreinið sagnir um þá.

